Fjölærar plöntur

Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur og líffræðingur, Gurrý í garðinum, hefur unnið við garðyrkjutengd störf allan sinn starfsferil og frætt almenning um garðyrkju með margvíslegum hætti, í útvarpi, sjónvarpi og öðrum miðlum.

Í þessari bók fjallar Gurrý um fjölærar plöntur sem henta í íslenska garða en hún hefur lengi haft sérstakt dálæti á fjölæringum hvers konar. Flestar tegundir í bókinni eru vel þekktar í ræktun en innan um og saman við eru sjaldgæfari dýrindi.

Alls koma tæplega 180 tegundir við sögu í bókinni og eru hverri tegund gerð skil í máli og myndum á heilli opnu.

Ólafur Unnar Kristjánsson hannar.

Bergrún Adda Pálsdóttir á teikningar.

Texti og ljósmyndir: Guðríður Helgadóttir.

Isbn: 978-9935-32-120-6

488 bls. Mjúk kápa. Litprent.

 

Guðríður Helgadóttir

Pin It on Pinterest

Share This