Sjö systur

 

Maia DAplièse og systur hennar fimm hittast á bernskuheimili sínu Atlantis – ævintýralegum, afskekktum kastala á bökkum Genfarvatns – eftir að faðir þeirra er látinn. Hann hafði ættleitt þær allar sem ungbörn frá ólíkum heimshornum og þær dýrkuðu hann, hver á sinn hátt. Við lát hans fá þær í hendur vísbendingar um uppruna sinn.

Maia fer yfir hálfan heiminn og í Río de Janeró í Brasilíu byrjar hún að púsla saman sögu sinni. Þar kemur byggingameistarinn Heitor da Silva Costa við sögu, en hann hafði þá áætlanir um að reisa gríðarstóra styttu, Krist frelsara.

Ævintýralegt höfðingjalíf í Brasilíu og listamannalíf Parísar á Montparnasse verður lifandi í þessari leiftrandi sögu um ást og missi – þeirri fyrstu í þessum bókaflokki, eftir Lucindu Riley sem lést langt fyrir aldur fram sumarið 2021.

Sagnahæfileikar hennar og leikir að sögulegum staðreyndum þykja framúrskarandi. Bækur hennar hafa selst í milljónum eintaka um heim allan.

Þýðing: Valgerður Bjarnadóttir.

Bókin kemur út á íslensku föstudaginn 1. október 2021. 

FORSÖLUTILBOÐ: 3.490 með heimsendingu.
FULLT VERÐ 3.990.

Lucinda Riley

Þessa leggur maður ekki frá sér, full af dramatík og rómantík.

Daily Mail

Riley er einn besti höfundur sinnar tegundar … sagnfræðin er með ágætum, ástarsagan hjartnæm og dulúðin töfrandi.

Historical Novel Society

Pin It on Pinterest

Share This